Lægðirnar bíða í röðum

Kort/Veðurstofa Íslands

Umhleypingasamir dagar fram undan enda liggja lægðirnar í röðum eftir því að komast til okkar en þetta er ansi algeng staða á haustin að lægðagangur sé mikill, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Á milli þess að fá blautar, hlýjar og hvassar sunnan- og suðaustanáttir koma suðvestan- og vestanáttir með skúrum og ekki er ólíklegt að stundum verði slydduél eða él. Hins vegar er ekki miklar líkur á norðanáttum með kulda og ofankomu.

Engu að síður getur hæglega snjóað á fjallvegum, bæði þegar skil eru að koma inn á land og eins í svalari suðvestanáttum. Það virðist oft koma ökumönnum á óvart að hálka og krapi myndist, en næstu vikuna er útlit fyrir fjórar lægðir úr suðri sem ætla sér að koma við,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurspá fyrir næstu daga

Austan og norðaustan 8-15 og rigning með morgninum, einkum SA-til. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu í dag, en gengur í allhvassa vestanátt SV-lands í kvöld og fer aftur að rigna.
Víða vestan hvassviðri um landið austanvert í nótt og rigning á köflum, en mun hægari vestan til og þurrt SA-lands. Lægir á morgun og styttir víða upp, en vaxandi sunnanátt allra vestast annað kvöld.
Hiti 1 til 10 stig, svalast í innsveitum norðanlands en mildast við suðausturströndina.

Á miðvikudag:

Vestan 8-15 en mun hvassara til fjalla á austanverðu landinu. Víða skúrir eða él, en þurrt suðaustan- og austanlands. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. 

Á fimmtudag:
Sunnan 10-15 og rigning, talsverð á Suður- og Suðausturlandi en úrkomulítið norðan Vatnajökuls. Hiti víða 5 til 10 stig. 

Á föstudag:
Suðvestanátt og skúrir um landið vestanvert en þurrt austan til. Snýst í sunnanátt með rigningu um kvöldið en áfram úrkomulitið NA-til. Hiti 2 til 7 stig. 

Á laugardag:
Allhvöss suðvestanátt með rigningu, en úrkomulítið á Austfjörðum. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast austast. 

Á sunnudag:
Áframhaldandi suðvestanátt og skúrir eða él en bjartviðri A-lands. Kólnar og frystir víðast hvar inn til landsins um kvöldið. 

Á mánudag:
Útlit fyrir vaxandi suðvestanátt með rigningu og hlýnandi veðri um kvöldið, fyrst vestan til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert