Kalda vatnið ódýrast á Íslandi

Íslensk heimili nota að meðaltali um 500 lítra af köldu …
Íslensk heimili nota að meðaltali um 500 lítra af köldu vatni á sólarhring. mbl.is/Heiddi

Kalda vatnið er ódýrast á Íslandi sé verð þess á Norðurlöndunum skoðað. Þannig bera heimili í Danmörku rúmlega þrefalt meiri kostnað af notkun á kalda vatninu á ársgrunni en íslensk heimili.

Þetta kemur fram í árlegri samantekt Samorku um kaldavatnsnotkun og er þar stuðst við nýjar tölur frá stærstu veitufyrirtækjum Norðurlandanna.

Í Danmörku nemur kostnaðurinn á ári hverju tæpum 78 þúsund krónum og er það langmesti kostnaðurinn á Norðurlöndunum. Fram kemur í samantektinni að skattar og gjöld hækki töluna mikið, en jafnvel án þeirra sé kalda vatnið samt dýrast þar. Finnsk heimili greiða um 45 þúsund á hverju ári og upphæðin er svipuð í Noregi, um 42 þúsund. Minnst er rukkað fyrir þessa þjónustu í Svíþjóð og á Íslandi. Í Svíþjóð má búast við að greiða rúmlega 25 þúsund krónur árlega fyrir notkun á köldu vatni en á Íslandi 24 þúsund, eða sem nemur tvö þúsund krónum á mánuði.

Meðalnotkun heimila á köldu vatni er hvergi í Evrópu meiri en á íslenskum heimilum og nemur hún um 500 lítrum á sólarhring. Kalt vatn er ekki selt um rennslismæla hérlendis eins og víðast hvar annars staðar, heldur er kostnaður áætlaður út frá fasteignamati.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert