Tankbíll og fólksbíll rákust saman á gatnamótum Hringbrautar og Nauthólsvegar, skammt frá BSÍ, um klukkan 10 í morgun.
Engin slys urðu á fólki.
Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu lak þó nokkuð niður af díselolíu og glussa á götuna og er slökkviliðið í óða önn að þrífa upp efnin.
Miklar umferðartafir hafa orðið vegna slyssins.