Reykjanesbraut var lokað vegna slyss

Reykjanesbraut er lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss sem varð miðja vegu milli nýju gatnamótanna við Krísuvíkurveg og gatnamótanna við Strandgötu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu nú á sjöunda tímanum. Er vegfarendum bent á að hægt sé að fara hjáleið um Vallahverfi í báðar áttir og einnig um Holtahverfi og er umferð beint þá leið.

Að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru þrír fluttir af vettvangi, þar af einn alvarlega slasaður. Var áreksturinn mjög harður, en tveir bílar sem komu hvor úr sinni áttinni skullu saman og eru báðir taldir ónýtir.

Slökkviliðið sendi tvo tækjabíla og fjóra sjúkrabíla á vettvang, en ekki þurfti þó að beita tækjum til að ná fólki úr bílunum. Voru allir fluttir á sjúkrahús.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert