Geðhjálp er Fyrirmynd 2018

Ketill Berg Magnússon, formaður Almannaheilla, Guðni Th. Jóhannesson, forseti, Hrannar …
Ketill Berg Magnússon, formaður Almannaheilla, Guðni Th. Jóhannesson, forseti, Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar, Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar og Fanney Karlsdóttir, verkefnastjóri Heimsmarkmiðanna.)

„Fólk sem gerir aldrei neitt saman er ekki hægt að kalla þjóð,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og vitnaði þar í Jóhannes S. Kjarval í erindi sínu á 10 ára afmælishátíð Almannaheilla – samtaka þriðja geirans – sem fram fór í gær.

Fjölmörg félög sem tengjast Almannaheillum voru gestir í afmælinu. Þar voru líka þrír fyrstu formenn samtakanna heiðraðir. Það voru þau Guðrún Agnarsdóttir, Ragna Árnadóttir og Ólafur Proppé.

Á hátíðinni tilkynnti Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, hvaða félagasamtök hljóta viðurkenninguna Fyrirmyndin 2018. Hún er veitt félagasamtökum sem starfa af fagmennsku og skipuleggja starfsemi sína með gagnsæi, þjónustu, skilvirkni og siðferði að leiðarljósi. 

Fyrirmyndina 2018 hlaut Geðhjálp og tók Hrannar Jónsson, formaður félagsins, við viðurkenningunni fyrir hönd þess. Hrannar sagði þetta ofboðslegan heiður og væri hann stoltur að taka við viðurkenningunni, að því er segir í fréttatilkynningu.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að starfsemin sé skipulögð og val þess á verkefnum og útfærsla þeirra beri með sér að félagið vinni afar faglega. Sérstaklega er tekið eftir að upplýsingar um fjármál félagsins eru aðgengilegar öllum, en félagið birtir ársreikninga sína á vefnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert