Líkamsárás og rán

mbl.is/Kristinn

Maður í annarlegu ástandi var handtekinn í Kópavogi á ellefta tímanum í gærkvöldi grunaður um líkamsárás og rán. Árásarmaðurinn hafði slegið mann í andlitið og rænt farsíma hans.  Árásarmaðurinn er vistaður í fangageymslum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar málsins.

Fyrr um kvöldið hafði lögreglan handtekið mann í annarlegu ástandi í Kópavoginum en hann er grunaður um þjófnað úr verslun. Maðurinn var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.

Lögreglan handtók mann í hverfi 108 um kvöldmatarleytið sem er grunaður um húsbrot, þjófnað og vörslu fíkniefna. Maðurinn er vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.

Stuttu áður hafði verið tilkynnt um að brotist hafi verið inn í bifreið í hverfi 103 og hljóðfæri stolið auk fleiri hluta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert