Umferðaróhapp í Hvalfjarðargöngunum

Tilkynnt var um umferðaróhapp í Hvalfjarðargöngum um ellefuleytið í gærkvöldi og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru tvær bifreiðar óökufærar eftir óhappið. Annar ökumaðurinn kvartaði um eymsli í hálsi en ekki kemur fram í dagbók lögreglunnar um hvernig óhapp var að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert