Bíl hvolfdi við Arnarnesveg

Þrír sjúkrabílar fóru á vettvang er bíl hvolfdi á Arnarnesvegi …
Þrír sjúkrabílar fóru á vettvang er bíl hvolfdi á Arnarnesvegi í Kópavogi fyrir skömmu. mbl.is/Eggert

Fólksbifreið hvolfdi við Arnarnesveg í Kópavogi á sjöunda tímanum í dag er hún skall á annarri. Þrír slösuðust og viðbúnaður viðbragðsaðila er nokkur, en tilkynning um slysið barst um kl. 18.20.

Þrír sjúkrabílar fóru á vettvang og einn slökkviliðsbíll. Slys á fólki eru minni háttar, að því er virðist í fyrstu. Tildrög slyssins eru ekki ljós.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert