Einn fékk 27 milljónir

Lottó.
Lottó.

Einn spilari var með allar tölurnar réttar í Lottó í kvöld og renna 27,2 milljónir til hans. Er miðinn í áskrift. Þá var einn með bónusvinninginn og fékk sá 464 þúsund í sinn hlut. Var sá miði seldur á Olísstöðinni í Norðlingaholti.

Enginn var með fimm rétta í Jókernum, en fjórir fengu fjórar tölur réttar og fékk hver og einn 100 þúsund krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert