Aftanákeyrsla á Akureyri

Einn var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri.
Einn var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri. mbl.is/Þorgeir

Ökumaður fólksbíls var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri eftir að hann ók aftan á bíl ferðaþjónustu fatlaðra á Hlíðarbraut á Akureyri á öðrum tímanum í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri eru meiðsl bílstjórans minni háttar en hann var einn í bílnum. 

Ökumaður ferðaþjónustubílsins var líka einn á ferð og slasaðist hann ekki við óhappið.

Þá ók maður á ljósastaur á Drottningarbraut klukkan 07:22 í morgun. Maðurinn leitaði sjálfur læknisaðstoðar en meiðsli hans eru ekki alvarleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert