„Við rifum bara ræsið burt og setjum nýtt,“ segir Sigurður Jónsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Akureyri. Mbl.is greindi frá því um helgina að stærðar hola hefði myndaðist í gamla Vaðlaheiðarveginum við Akureyri. Hafði jörðin opnaðist á veginum með þeim hætti að hefði bíll keyrt þar ofan í hefði hann átt á hættu að stórskemmast.
Hjörleifur Árnason, jarðareigandi í Vaðlaheiði, sagði í samtali við mbl.is á laugardag að holan væri í það minnsta 1,5 metrar á dýpt og að hún slagi í metra í þvermál.
Sigurður sagði í samtali við mbl.is á sunnudag að holan væri ekkert stórvægileg og að Vegagerðin myndi laga hana á mánudag. Vinna við viðgerðina hófst í gær líkt og til stóð og var búið að grafa þvert yfir veginn þegar ljósmyndari mbl.is var þar á ferð í dag.
Að sögn Sigurðar er alltaf hafður þessi háttur á þegar skipt er um ræsi. „Þegar ræsi eru ónýt þá gröfum þau bara upp og setjum ný,“ segir hann og kveður vinnuna ganga vel. „Við rifum ofan af þessu í gær og vorum svo að bíða eftir efni frá Reykjavík og það kom í morgun.“ Gerir hann ráð fyrir að opnað verði fyrir akstur um veginn á ný á morgun.
Spurður hvort eitthvað hefði komið Vegagerðinni á óvart er grafið var þar niður segir hann það helst vera að ræsið var ekki jafn skemmt og þeir áttu von á þrátt fyrir stærð holunnar, en vatnið sem rann í gegnum ræsið hafði myndað holrúmið. „Við urðum samt að rífa það upp og henda því,“ segir Sigurður.