Bókaprentun hverfandi iðnaður á Íslandi

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að svo virðist sem …
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að svo virðist sem skammtímasjónarmið hafi ráðið för þegar útgefendur tóku að láta prenta bækur erlendis.

Prentun harðspjaldabóka á Íslandi er hverfandi iðnaður, segir í yfirlýsingu frá Samtökum iðnaðarins, sem benda á að fyrir áratug hafi um helmingur íslenskra bóka verið prentaður hér á landi en fyrir þessi jól séu nánast allar bækur prentaðar erlendis.   

Þó enn sé hægt að fá prentaðar harðspjaldabækur að á Íslandi er það í litlu magni í samanburði við það sem var áður en prentsmiðjan Oddi hætti starfsemi bókbands, prentunar og frágangs á harðspjaldabókum fyrr á þessu ári.   

„Það virðist sem skammtímasjónarmið hafi ráðið för þegar bókaútgefendur hófu að leita í auknum mæli með bókaprentun erlendis,“ er haft eftir Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra SI í tilkynningunni. „Bókaprentun er gömul iðngrein hér á landi en hátt í 500 ár eru síðan fyrsta prentvélin var sett upp á Íslandi. Þessi mikilvægi iðnaður hefur farið halloka síðustu ár og er nú að hverfa. Það skiptir miklu fyrir íslenska hagkerfið að hafa fjölbreytni í atvinnulífinu því það dregur úr sveiflum. Með því að færa bókaprentun úr landi dregur úr þeirri fjölbreytni.“

Segir Sigurður að bókaútgefendur hafi haft val um hvert þeir beindu viðskiptum sínum og ekki verði  horft framhjá þeirri staðreynd að þeir völdu að fara með bókaprentunina til útlanda. „Það er söknuður að því nú þegar virðist sem iðnaðurinn sé að mestu farinn úr landi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert