Harma rangar upplýsingar um áhrif orkupakkans

Hvetur ÍEV ennfremur stjórnvöld til að ljúka sem fyrst lagasetningu …
Hvetur ÍEV ennfremur stjórnvöld til að ljúka sem fyrst lagasetningu vegna innleiðingar þriðja orkupakka Evrópusambandsins í EES-samninginn. mbl.is/Brynjar Gauti

 „Stjórn Íslensk-evrópska viðskiptaráðsins (ÍEV) hvetur stjórnvöld til að ljúka sem fyrst lagabreytingum til að bregðast við dómum Hæstaréttar og EFTA-dómstólsins, þess efnis að bann við innflutningi á fersku kjöti, eggjum og vörum úr ógerilsneyddri mjólk brjóti í bága við EES-samninginn,“ að því er fram kemur í ályktun sem stjórnin samþykkti í dag.

Lýsir stjórnin í ályktun sinni enn fremur furðu á yfirlýsingum stjórnmálamanna í stjórn og stjórnarandstöðu um að ekki beri að fara að dómi æðsta dómstóls landsins, eða standa við gerða samninga íslenska ríkisins. Slíkt brjóti „freklega gegn réttaröryggi fyrirtækja og borgara“.

Hvetur ÍEV ennfremur stjórnvöld til að ljúka sem fyrst lagasetningu vegna innleiðingar þriðja orkupakka Evrópusambandsins í EES-samninginn, sem Ísland hefur einnig samið um nú þegar. Harmar stjórnin „þær röngu upplýsingar sem haldið er að almenningi um áhrif orkupakkans og ítrekar að ákvæði hans fela hvorki í sér valdaframsal til Evrópusambandsins, afsal forræðis yfir orkuauðlindunum né skyldu til að leggja sæstreng til Íslands.“

Þá ítrekar stjórn ÍEV ítrekar að það séu gífurlegir hagsmunir íslensks atvinnulífs að rekstur EES-samningsins gangi sem greiðast fyrir sig og að allir aðilar séu reiðubúnir að fara að gerðum samningum og alþjóðlegum skuldbindingum sínum. „Stjórnmálamenn, sem telja að Ísland geti brotið gerða samninga án þess að það hafi afleiðingar, stefna trúverðugleika Íslands og hagsmunum atvinnulífs og almennings í tvísýnu,“ segir í ályktuninni.

ÍEV er hýst og rekið af Félagi atvinnurekenda og er tilgangur þess að efla verslunar- og viðskiptasambönd milli Íslands og Evrópusambandsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert