Efnalitlar fjölskyldur fá stuðning fyrir jól

Á svæðum þar sem önnur hjálparsamtök eru að störfum einskorðar …
Á svæðum þar sem önnur hjálparsamtök eru að störfum einskorðar Hjálparstarf kirkjunnar aðstoðina við barnafjölskyldur sem búa við kröpp kjör. Þar sem Hjálparstarfið er eitt að störfum er einstaklingum einnig veitt sérstök aðstoð fyrir jól. Ljósmynd/Aðsend

Hjálparstarf kirkjunnar undirbýr nú sérstaka aðstoð við efnalitlar fjölskyldur í desember. Markmiðið er að gera fólki kleift að gleðjast með sínum nánustu yfir hátíðirnar.

Fram kemur í tilkynningu, að tekið verði á móti umsóknum frá barnafjölskyldum á höfuðborgarsvæðinu á skrifstofu Hjálparstarfsins, Háaleitisbraut 66 í Reykjavík, dagana 4., 5. og 6. desember kl. 11 – 15 en prestar á landsbyggðinni taka við umsóknum í heimasókn til og með 10. desember. Með umsóknum þurfa að fylgja gögn um tekjur og útgjöld frá síðustu mánaðamótum.

Þá segir, að stuðningurinn taki mið af aðstæðum hvers og eins og sé fyrst og fremst í formi inneignarkorta fyrir matvöru en þau verði gefin út eigi síðar en 19. desember. Fólki býðst einnig að sækja sér fatnað hjá stofnuninni og foreldrar fá efnislega aðstoð svo börnin geti fengið jólagjafir sem þau hafa sett á óskalistann.

Fólk sem hefur fengið Arion inneignarkort í matvöruverslunum hjá Hjálparstarfinu á árinu sem er að líða getur sótt um aðstoð fyrir jól á vefsíðu Hjálparstarfsins www.help.is til og með 14. desember.

„Á svæðum þar sem önnur hjálparsamtök eru að störfum einskorðar Hjálparstarf kirkjunnar aðstoðina við barnafjölskyldur sem búa við kröpp kjör. Þar sem Hjálparstarfið er eitt að störfum er einstaklingum einnig veitt sérstök aðstoð fyrir jól. Gott samstarf um jólaaðstoð er milli Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar og Rauða krossins á Eyjafjarðarsvæðinu, í Árnessýslu, á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu.

Alls nutu 1.304 fjölskyldur eða um 3.500 einstaklingar um land allt aðstoðar fyrir síðustu jól. Fjölmörg fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar veita styrki til starfsins ár hvert og vinnuframlag sjálfboðaliða við skráningu umsókna fyrir jól er jafnframt ómetanlegt,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert