Enn þungfært og meiri snjór á leiðinni

mbl.is/Þorgeir Baldursson

Enn er þungfært innanbæjar á Akureyri eftir mikla snjókomu síðustu daga. Lögreglan segir fólk taka því rólega og er meira um að fólk festi sig en umferðaróhöpp.

Unnið er að því að ryðja götur bæjarins, en samkvæmt veðurspá á að snjóa meira fyrir norðan í nótt og á morgun. Því má búast við þungu færi á svæðinu áfram.

mbl.is/Þorgeir Baldursson
mbl.is/Þorgeir Baldursson
mbl.is/Þorgeir Baldursson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert