Fylgdu ekki skilyrði um greiða

Árni Þór Sigurðsson sendiherra.
Árni Þór Sigurðsson sendiherra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Skipan mín sem sendiherra var ákvörðun ráðherra og í samræmi við lög um utanríkisþjónustuna. Þeirri skipun fylgdu engin skilyrði um einhvern greiða í framtíðinni,“ segir Árni Þór Sigurðsson á Facebook-síðu sinni í dag vegna umræðu í kjölfar Klaustursmálsins um það með hvaða hætti staðið var að skipan hans sem sendiherra á sínum tíma í tíð Gunnars Braga Sveinssonar sem utanríkisráðherra.

Gunnar sagði á hljóðupptöku, sem náðist af honum og fleiri þingmönnum á dögunum þar sem farið var ljótum orðum um ýmsa samþingmenn þeirra og fleira fólk, að hann hefði skipað Árna sendiherra til þess að draga athyglina frá fyrirhugaðri skipun Geirs H. Haarde, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, sem sendiherra í Bandaríkjunum. 

Forsöguna að skipuninni segir Árni vera þá að hann hafi séð framkvæmdastjórastöðu hjá Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) auglýsta og kannað hjá utanríkisráðuneytinu hvort hann kæmi til álita vegna reynslu sinnar og menntunar. Árni hafi verið tilnefndur, staðist hæfismat ÖSE en lotið í lægra haldi fyrir fyrrverandi varautanríkisráðherra Þýskalands. Í framhaldinu hafi hann lýst áhuga á því við Gunnar Braga að starfa að utanríkis- og alþjóðamálum, en Árni Þór var þá þingmaður Vinstri-grænna.

Óskaði aldrei eftir stuðningi VG

„Þar var þá horft til þess að ég hef meistaragráðu í hagfræði og rússnesku, meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum og diplóma í opinberri stjórnsýslu. Auk þess hef ég um margra ára skeið starfað að alþjóðamálum, m.a. sem formaður utanríkismálanefndar Alþingis, á vettvangi EFTA-samstarfsins, í Norðurlandaráði og innan Evrópuráðsins. Í þessu ferli óskaði ég aldrei eftir stuðningi frá forystu míns flokks, enda var það og er mín skoðun að meta eigi einstaklinga út frá hæfni, þekkingu, reynslu og menntun.“

Það hafi aldrei komið annað fram í viðræðum Árna við Gunnar Braga en að hugsanleg skipun hans til starfa í utanríkisþjónustunni yrði grundvölluð á menntun og reynslu sem myndi nýtast þjónustunni segir hann.

„Ég tel jákvætt fyrir utanríkisþjónustuna að innan raða hennar sé að finna fólk með sem fjölbreyttastan bakgrunn, þekkingu og reynslu. Þótt kjarninn í hópi sendiherra verði ávallt skipaður einstaklingum með farsæla reynslu úr utanríkisþjónustunni er það henni til styrkingar að þangað veljist einnig fólk með reynslu úr atvinnulífi, háskólastarfi, menningarlífi, stjórnmálum o.s.frv. Það var síðan ákvörðun Alþingis á sínum tíma að undanskilja sendiherraembætti auglýsingaskyldu.“

Var gagnrýndur fyrir ákvörðunina

Gunnar Bragi hafi ekki nefnt við Árna að hann hygðist einnig skipa Geir sendiherra. „Skömmu áður en frá skipuninni var gengið nefndi hann þó að tveir yrðu skipaðir úr röðum stjórnmála og væri ég annar þeirra. Nafn Geirs hafði komið fram í fjölmiðlum í þessu sambandi. Afstaða mín til þess að hverfa úr stjórnmálum og hefja störf að utanríkismálum byggðist hins vegar sem fyrr segir á þeim áhuga að nýta sem best menntun mína og reynslu. Af því leiðir að hvaða aðrir einstaklingar kynnu að fara til starfa í utanríkisráðuneytinu á svipuðum tíma hafði ekki áhrif á mig. Sá þáttur málsins er mér með öllu óviðkomandi.“

Þegar ákvörðun um skipan hans lá fyrir segist Árni hafa greint formanni VG frá því að hann myndi láta af þingmennsku og hefja störf í utanríkisráðuneytinu. „Í framhaldinu greindi ég einnig þingflokki VG frá því. Ýmsir í mínum flokki gagnrýndu mig fyrir þá ákvörðun, það var gagnrýni sem ég hafði skilning á og tók nærri mér, en ég var engu að síður ósammála. Það er sannfæring mín að sanngjarnast sé að meta fólk út frá störfum sínum, árangri og umsögnum samstarfsfólks. Því mati kvíði ég ekki.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert