Bubbi fær heiðurslaun listamanna

Bubbi Morthens tónlistarmaður prýðir nýjan lista yfir heiðurslaun listamanna samkvæmt …
Bubbi Morthens tónlistarmaður prýðir nýjan lista yfir heiðurslaun listamanna samkvæmt ákvörðun Alþingis. mbl.is/Golli

Alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd Alþing­is hef­ur lagt til að 25 lista­menn fái heiðurs­laun sam­kvæmt ákvörðun þings­ins. Tillagan er lögð fram sem breytingartillaga við fjárlagafrumvarp næsta árs. 

Listinn er óbreyttur frá því í fyrra að því undanskildu að Bubbi Morthens kemur nýr inn á listann og tekur hann í raun sæti Þorsteins frá Hamri sem lést fyrr á þessu ári. 

Heiðurs­laun lista­manna voru fyrst veitt árið 1967 og voru veitt í óbreytti mynd til 1991, þegar upphaflegu lögin voru felld úr gildi en ný lög um lista­manna­laun, nr. 35/​​1991, tóku við. 

Vorið 2012 voru sett lög um heiðurs­laun lista­manna og tóku þau gildi í sept­em­ber sama ár. Í nýju lög­un­um er sett þak á fjöld­ann, 25 lista­menn fái ár­lega heiðurs­laun sem skuli vera jafn­há starfs­laun­um lista­manna og veitt að fullu til 70 ára ald­urs, en eft­ir það séu þau 80% af starfs­laun­um.

15 karlar og 10 konur er á listanum í ár sem er svohljóðandi:  

1. Atli Heim­ir Sveins­son

2. Bubbi Mort­hens

3. Erró

4. Guðberg­ur Bergs­son

5. Guðrún Ásmunds­dótt­ir

6. Guðrún Helga­dótt­ir

7. Gunn­ar Þórðar­son

8. Hann­es Pét­urs­son

9. Hreinn Friðfinns­son

10. Jóhann Hjálm­ars­son

11. Jón Nor­dal

12. Jón Sig­ur­björns­son

13. Jón­as Ingi­mund­ar­son

14. Krist­björg Kj­eld

15. Kristín Jóhann­es­dótt­ir

16. Magnús Páls­son

17. Matt­hías Johann­essen

18. Megas

19. Steina Vasul­ka

20. Vigdís Gríms­dótt­ir

21. Vil­borg Dag­bjarts­dótt­ir

22. Þor­björg Höskulds­dótt­ir

23. Þor­gerður Ingólfs­dótt­ir

24. Þrá­inn Bertels­son

25. Þuríður Páls­dótt­ir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert