Slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu á Selfossi voru boðaðir út rétt eftir klukkan eitt í nótt vegna elds í bifreið sem stóð á bílaplani fyrir utan veitingastað á Austurvegi á Selfossi.
Mikill eldur var í bifreiðinni er slökkviliðsmenn komu á vettvang en greiðlega gekk að slökkva eldinn. Bifreiðin er gjörónýt eftir brunann. Eldsupptök eru óljós á þessari stundu, segir í tilkynningu á Facebook.