Vann 30 milljónir í Happdrætti HÍ

Ljósmynd/Aðsend

Einn heppinn miðaeigandi fékk þrefaldan vinning í milljónaveltu Happdrættis Háskóla Íslands og fær 30 milljónir króna í sinn hlut, en dregið var í kvöld.

Annar heppinn miðaeigandi fékk 5 milljónir króna í aðalútdrættinum, fimm heppnir miðaeigendur fengu eina milljón hver og níu 500 þúsund króna í vinning, að því er fram kemur í tilkynningu. 

Þá segir, að rúmlega 3.000 heppnir miðaeigendur hafi ástæðu til að gleðjast eftir útdrátt desembermánaðar hjá Happdrætti Háskólans en þeir skipta með sér 121 milljón króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert