Björn Ingi nýr verkefnisstjóri almannavarna

Björn Ingi Jónsson.
Björn Ingi Jónsson. mbl.is/Sigurður Bogi

Björn Ingi Jónsson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri í almannavörnum hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi og hefur störf um komandi áramót. Hann kemur í stað Víðis Reynissonar sem verið hefur í þessu starfi frá ársbyrjun 2016. 

Fram kemur í tilkynningu, að Björn Ingi hafi verið valinn úr hópi 10 umsækjenda sem sóttu um starfið. Hann mun sinna starfinu í umboði lögreglustjóra og sveitarfélaga í umdæminu. 

„Hann hefur langa reynslu af störfum í björgunargeiranum, setið bæði sem formaður Björgunarfélags Hornafjarðar og í svæðisstjórn björgunarsveita þar eystra. Hann starfaði sem héraðslögreglumaður um 10 ára skeið og sem afleysingamaður í lögreglu á sumrum þar að auki. Þá hefur hann setið í almannavarnanefnd frá árinu 2006 og sem formaður hennar þau fjögur ár sem hann var bæjarstjóri hjá Sveitarfélaginu Hornafirði,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert