Met slegið í fjölda útkalla hjá Gæslunni

Fjölgun útkalla loftfara Gæslunnar hefur það í för með sér …
Fjölgun útkalla loftfara Gæslunnar hefur það í för með sér að löggæslu- og eftirlitsflug eru færri en oft áður. mbl.is/​Hari

Þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar hafa það sem af er ári farið í 265 útköll og hafa þau aldrei verið fleiri. Flugdeildin hefur því sett enn eitt metið í fjölda útkalla.

Landhelgisgæslan greinir frá því, að allt árið í fyrra hafi loftför Gæslunnar farið í 257 útköll en undanfarin ár hafi útköllunum fjölgað frá ári til árs.

Til samanburðar hafi þau verið 160 árið 2011.

Þyrla Gæslunnar á flugi.
Þyrla Gæslunnar á flugi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þá segir, að útköll fyrstu ellefu mánuði ársins 2018 séu því 65% fleiri en allt árið 2011.

„Þá hafa útköll í hæsta forgangi verið rúmur þriðjungur allra útkalla ársins en tölurnar benda til þess að sjúkraflugi á land hafi fjölgað töluvert milli ára. Fjölgun útkalla loftfara Landhelgisgæslunnar hefur það í för með sér að löggæslu- og eftirlitsflug eru færri en oft áður,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert