Dreymdi vinningstölurnar

Hjónin unnu rúmar þrjár milljónir.
Hjónin unnu rúmar þrjár milljónir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Konu af Norðurlandi dreymdi vinningstölurnar í Víkingalottói og voru hún og eiginmaður hennar lukkuleg þegar þau komu með vinningsmiðann frá 28. nóvember á skrifstofu Íslenskrar getspár. Unnu þau rúmar þrjár milljónir í þriðja vinning.

„Frúna dreymdi tölurnar, dreif sig á næsta sölustað og keypti 2 raðir í Víkingalottó fyrir aðeins 200 krónur,“ kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Önnur röðin var með fimm aðaltölur réttar auk Víkingalottótölu.

„Þetta kemur sér aldeilis vel því þau eru einmitt farin að huga að því að endurnýja fjölskyldubílinn og svo er voðalega notalegt að eiga von á rúmlega 3 milljónum inn á reikninginn sinn, svona rétt fyrir jólin,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert