Langur biðtími eftir viðtali við sálfræðing

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Biðtími eftir viðtali við sálfræðing hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru fimm til sjö mánuðir. Biðtíminn er mislangur eftir heilbrigðisstofnunum á landinu en stystur er biðtíminn hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða; fjórar vikur.

Þetta kemur fram í svari Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, þingmanns Miðflokksins. Ekki fengust upplýsingar um lengd biðlista á Akureyri en fram kemur í svari Svandísar að þar sé hann lengstur. Svör bárust ekki frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. 

Fram kemur í svari Svandísar að biðtíminn hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands sé tveir til sex mánuðir, biðtíminn hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands er þrír til fjórir mánuðir fyrir ungmenni að 18 ára aldri en engin bið er eftir hópmeðferðarnámskeiði í hugrænni atferlismeðferð fyrir fullorðna. 

Anna Kolbrún Árnadóttir þingmaður Miðflokksins.
Anna Kolbrún Árnadóttir þingmaður Miðflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er biðtími hjá aldurshópnum sem er yngri en 18 ára misjafn eftir stöðvum, oftast á bilinu 0–4 vikur, en einstaka heilsugæslustöð getur verið með allt að átta vikna biðtíma. Hjá þeim sem eru eldri en 18 ára er biðtíminn þrjár til átta vikur.

Ein staða fyrir hverja níu þúsund íbúa

Svandís var einnig spurð um fjölda stöðugilda sálfræðinga við hverja stofnun og hversu mörg ráðherra telur þau vera til að tryggja viðunandi þjónustu. Flest eru stöðugildin 12,5, fyrir börn og ungmenni að 18 ára á höfuðborgarsvæðinu. Fæst eru stöðugildin 0,25 á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.

Svandís segir að þörf íbúa landsins fyrir geðheilbrigðisþjónustu hafi ekki verið metin með formlegum hætti. Í stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum er miðað við að ein staða sálfræðings sé fyrir hverja níu þúsund íbúa.

Vegna mikillar eftirspurnar eftir þjónustu hafa börn yngri en 18 ára verið sett í forgang. Mikilvægt er að heilsugæslan geti einnig mætt þörfum fullorðinna fyrir þjónustu sálfræðinga og er að því unnið um allt land. Samhljóma álit heilbrigðisstofnananna og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins nú er að mikil eftirspurn sé eftir þjónustu sálfræðinga um land allt og bæta þarf við þá þjónustu til að mæta þjónustuþörf,“ kemur fram í svari Svandísar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert