Í vanda á Kirkjufelli

mbl.is/Eggert

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Snæfellsnesi voru kallaðar út fyrir skömmu til leitar að tveimur mönnum á Kirkjufelli við Grundarfjörð.

Mennirnir voru við göngu á fjallið en töpuðu slóðanum og gerðu það eina rétta, að kalla eftir hjálp. Aðstæður á fjallinu eru ekki góðar, undirlag blautt, vindur og myrkur að skella á, að því er Landsbjörg greinir frá.

Fyrstu hópar björgunarmanna eru að leggja af stað á fjallið og munu í fyrstu lotu leggja áherslu á svæðið umhverfis gönguleiðina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert