Fylgdarakstur í Hvalfjarðargöngunum

Fylgdarakstur verður í Hvalfjarðargöngunum í kvöld og nótt vegna þrifa frá klukkan 22:00 og til klukkan 7:00 samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Fyrir vikið verður umferð stöðvuð við gangnamuna uns fylgdarbíll kemur. Gert er ráð fyrir að brottför frá hvorum enda verði um það bil á 20 mínútna fresti. 

Hraði um vinnusvæðið verður ennfremur lækkaður í 50 kílómetra á klukkustund og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og tillitsemi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert