Áfram í farbanni vegna 6 kílóa af hassi

tilefni til að halda honum lengur vegna rannsóknarhagsmuna.
tilefni til að halda honum lengur vegna rannsóknarhagsmuna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Héraðsdómur Suðurlands staðfesti í dag beiðni lögreglu um áframhaldandi farbann yfir ungum manni sem var handtekinn próflaus og undir áhrifum fíkniefna á vanbúinni bifreið á Suðurlandsvegi 7. nóvember. Við leit í bifreiðinni fundust tæp sex kíló af hassi.

Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi er rannsókn málsins langt komin og búast má við að ákæra á hendur manninum verði gefin út á næstu vikum. Farbann yfir manninum gildir til 16. janúar.

Maðurinn sætti vikulöngu gæsluvarðhaldi en ekki þótti tilefni til að halda honum lengur vegna rannsóknarhagsmuna. Var hann því látinn laus og úrskurðaður í farbann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert