Eldur við iðnaðarfyrirtæki í Garðabæ

mbl.is/Eggert

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um tólfleytið í dag eftir að tilkynnt var um eld við fyrirtæki í Miðhrauni í Garðabæ. Eldur hafði kviknaði í svo nefndum „euro“ flutninga pallettum utan við hús þar sem iðnaðarstarfsemi er í gangi.

Hafði heitur málmur komist í snertingu við viðinn og kviknað í. Að sögn vaktstjóra var slökkviðið fljótt á staðinn og greiðlega gekk að slökkva eldinn og stafaði nærliggjandi byggingum því ekki hætta af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert