Fargjaldið hækkar á morgun

Á morgun hækkar gjaldskrá Strætó.
Á morgun hækkar gjaldskrá Strætó. mbl.is/Hanna

Gjaldskrá Strætó hækkar að meðaltali um 3,9% á morgun og byggir hækkunin á samþykkt stjórnar frá 7. desember um að fyrirtækið mynda hækka gjöld í takt við almenna verðlagsþróun, að því er segir í tilkynningu Strætó.

Stakt fargjald með smáforriti fyrirtækisins verður 470 krónur, en staðgreiðslufargjald fyrir 6-17 ára, aldraða og öryrkja verður 235 krónur.

Samkvæmt eigendastefnu Strætó er stefnt að því að fargjöld standi undir 40% af rekstrarkostnaði, en þau standa undir 30% kostnaðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert