Landspítali fékk veglega gjöf

Jón Steinar Magnússon og Ómar Kristjánsson færðu Páli Matthíassyni forstjóra …
Jón Steinar Magnússon og Ómar Kristjánsson færðu Páli Matthíassyni forstjóra Landspítala gjöfina. Ljósmynd/Aðsend

GROHE á Íslandi færði Landspítala ný og fullkomin GROHE-tæki að gjöf fyrir skemmstu. Búnaðurinn verður notaður í nýjum byggingum spítalans, en verðmæti hans er tæplega 3 milljónir króna.

„Landspítali er þjóðarsjúkrahús og öflugasta stoð íslenska heilbrigðiskerfisins. Spítalinn er hins vegar sumpartinn vanbúinn tækjum og oftar en ekki illa fjármagnaður,“ sagði Ómar Kristjánsson, forstjóri RAMIS, umboðsaðila GROHE á Íslandi, við afhendingu gjafarinnar.

Hann segir að með þessari gjöf vilji GROHE, RAMIS og BYKO, stærsti söluaðili GROHE-tækja, þakka mannauðnum á Landspítala fyrir óeigingjarnt starf og fyrsta flokks þjónustu við erfiðar aðstæður.

„Við hjá GROHE, RAMIS og BYKO hugum að öryggi og velferð sjúklinga og starfsfólks og leggjum Landspítala lið með stolti,“ er jafnframt haft eftir Ómari, en fréttatilkynning um gjöfina barst frá Landspítala í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert