Andlát: Ib Árnason Riis

Ib Árnason Riis.
Ib Árnason Riis.

Ib Árnason Riis lést í Kaliforníu í Bandaríkjunum í vikunni, tæplega 104 ára að aldri. Ib var elstur íslenskra karla. Hann var þekktastur fyrir að hafa verið gagnnjósnari Breta á Íslandi í seinni heimsstyrjöld.

Ib fæddist 15. janúar 1915 í Danmörku, sonur hjónanna Lovísu Nielsen og Árna Aðalbjörnssonar. Hann ólst upp í Kaupmannahöfn og lærði til stýrimanns. Þjóðverjar sendu hann til Íslands til að njósna um umsvif breska hersins þar sem hann talaði íslensku. Eftir að hafa gengist undir þjálfun í njósnaskóla í Hamborg kom hann hingað til lands með kafbáti í mars 1942 með senditæki í fórum sínum og komst í land á sunnanverðu Langanesi eftir mikla hrakninga. Við komuna til Íslands gaf Ib sig strax fram við Breta og var í framhaldinu sendur með skipi til Bretlands, þar sem hann var skólaður til í gagnnjósnum. Að því búnu sneri hann aftur til Íslands og dvaldist hér á landi uns stríðinu lauk. Var honum falið að senda Þjóðverjum villandi skeyti með senditækinu sem hann hafði með sér til Íslands. Gekk hann sem gagnnjósnari undir dulnefninu Cobweb. Ásgeir Guðmundsson sagði sögu Ibs í bók sem nefnist Gagnnjósnari Breta á Íslandi og kom út árið 1991.

Ib flutti til Kanada árið 1949 og síðan til Bandaríkjanna árið 1955 og bjó þar til æviloka en hélt íslenskum ríkisborgararétti. Hann starfaði meðal annars hjá sjóminjasafninu í San Francisco. Helgi Felixson, sem unnið hefur að kvikmynd um Ib undanfarin ár, lýsti honum þannig í viðtali við Morgunblaðið á síðasta ári að hann væri ern og á róli, reykti pípu og fengi sér viskí og ákavíti.

„Segir það halda sér heilbrigðum og harðneitar að taka öll lyf sem honum eru rétt.“ Einnig kom fram í viðtalinu við Helga að Ib talaði enn góða íslensku.

Eiginkona Ibs var Sigrún Þórarinsdóttir en hún lést árið 2010. Þau eignuðust fjögur börn.

Elstur íslenskra karla er nú Lárus Sigfússon, sem fæddist 5. febrúar 1915 og er því 103 ára. Þorkell Zakaríasson er einnig 103 ára en hann fæddist 29. maí 1915.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert