Fjaðrárgljúfri lokað

Fjaðrárgljúfur.
Fjaðrárgljúfur. Ljósmynd/Gísli Sigurðsson

Umhverfisstofnun hefur frá og með morgundeginum ákveðið að loka Fjaðrárgljúfri vegna tíðarfars og ágangs ferðamanna. Frá þessu er greint á vefsíðu Umhverfisstofnunar.

Þar segir að mikið álag sé á svæðinu við Fjaðrárgljúfur og hætta á umtalsverðum skemmdum á gróðri meðfram göngustígum vegna ágangs ferðamanna. 

Göngustígur liggur undir skemmdum og er illfær vegna aurbleytu og leðju en það gerir það að verkum að gestir ganga utan við göngustíginn. Gróður er í dvala á þessum árstíma og svæðið sérstaklega viðkvæmt fyrir átroðningi. Það skemmist hratt með ágangi utan göngustígs auk þess sem nýir villustígar verða til.

Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir svæðið á degi hverjum og er álag á göngustíg og umhverfi hans gríðarlegt. Í sumar var lokið við endurgerð og uppbyggingu á hluta göngustígarins og er sá hluti í góðu ásigkomulagi. Búið er að hanna nýjan göngustíg meðfram öllu gljúfrinu sem mun þola umhleypinga eins og hafa verið undanfarnar vikur. Stefnt er á að hefja þær framkvæmdir við fyrsta tækifæri,“ segir á vefsíðu Umhverfisstofnunar.

Þar segir enn fremur að stefnt sé að því að endurskoða lokunina eigi síðar en innan tveggja vikna eða ef ástand breytist fyrir þann tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert