Varasamt ferðaverður verður á norðanverðu landinu vegna vindstrengja síðdegis í dag og framan af morgundegi. Spár gera ráð fyrir suðvestanstormi eða -roki norðan heiða en vindhviður við fjöll geta náð 40-50 m/s.
Vegagerðin varar ökumenn við vindhviðunum en nú þegar er orðið bálhvasst við Stafá á Siglufjarðarvegi, þar sem hviður fara nú í 50 m/s.
Gul viðvörun er í gildi víða á landinu; á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Austfjörðum og á hálendinu.
Íbúar eru hvattir til að tryggja lausa hluti utandyra sem gætu fokið og valdið tjóni. Auk þess eru farðalangar hvattir til að sýna aðgát.
Suðvestan 18-28 m/s á norðanverðu landinu síðdegis, hvassast á Ströndum og Tröllaskaga. Mun hægari vindur suðvestan til. Rigning eða súld, en þurrt um landið austanvert. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast austanlands.
Vestlægari og styttir upp í kvöld og nótt með kólnandi veðri, fyrst á Vestfjörðum.
Lægir smám saman á morgun, víða þurrt og bjart veður og frystir.