Brynjólfur handhafi Ljóðstafsins

Brynjólfur Þorsteinsson hlaut Ljóðstafinn fyrir ljóð sitt Gormánuður.
Brynjólfur Þorsteinsson hlaut Ljóðstafinn fyrir ljóð sitt Gormánuður. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ljóðstafur Jóns úr Vör var afhentur í 17. sinn við hátíðlega athöfn í Salnum í kvöld. Alls bárust 302 ljóð í keppnina og er Brynjólfur Þorsteinsson handhafi Ljóðstafsins þetta árið.

Um ljóð hans Gormánuður segir dómnefnd m.a.: „…dregur fram íslenskan hversdag sem birtist dularfullur og margræður, þar sem samruni náttúru og líkama myndar óljós og áhugaverð mörk milli heima“.

Í öðru sæti var Margrét Lóa Jónsdóttir fyrir ljóðið Allt sem lifir deyr og þriðja sætið hlaut Elías Knörr fyrir ljóðið Sunnudögum fækkar með sérhverri messu!

Sérstaka viðurkenningu hlutu auk þess ljóðskáldin Eyrún Ósk Jónsdóttir, Dagur Hjartarson, Arndís Þórarinsdóttir, Vilhjálmur B. Bragason, Hjörtur Marteinsson og Björk Þorgrímsdóttir, en dómnefnd skipuðu þau Bjarni Bjarnason formaður, Ásdís Óladóttir og Ásta Fanney Sigurðardóttir.

Þá voru einnig kunngjörð úrslit í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. 170 ljóð bárust frá grunnskólabörnum og var Katrín Valgerður Gustavsdóttir hlutskörpust í grunnskólakeppninni. Katrín Valgerður, sem er nemandi í 10. bekk Kársnesskóla, hlaut verðlaun fyrir ljóð sitt Súðavík. Í öðru sæti var nemandi í 6. bekk Hörðuvallaskóla, Örn Tonni Ágústsson Christensen fyrir ljóðið Englar og í þriðja sæti Margrét Hrönn Róbertsdóttir í 10. bekk Kársnesskóla fyrir ljóðið Hæ.

Þá hlutu sjö nemendur sérstaka viðurkenningu en  þau eru: Daníel Ingi Þorvaldsson 5. EP Snælandsskóla, Elmar Daði Ívarsson 6. L Hörðuvallaskóla, Emilíana Unnur Aronsdóttir 9. X Kársnesskóla, Hrefna Lind Grétarsdóttir í 7. A Álfhólsskóla, Margrét Hrönn Róbertsdóttir í 10. H Kársnesskóla, Snorri Sveinn Lund í 6. L Hörðuvallaskóla og Urður Matthíasdóttir í 9. Krækilyngi Vatnsendaskóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert