Friðhelgi í skiptum fyrir vitnisburð

Julian Assange.
Julian Assange. AFP

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa boðið einstaklingi sem er búsettur á Íslandi friðhelgi frá saksókn í skiptum fyrir að bera vitni gegn Julian Assange, stofnanda uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks.

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, staðfestir þetta í samtali við Fréttablaðið.

Vegna lokunar bandarískra alríkisstofnana segist upplýsingafulltrúi bandaríska sendiráðsins á Íslandi ekki geta tjáð sig um málið.

„Ég get staðfest frá fyrstu hendi að þetta hefur verið gert. Það hefur enginn sett sig í samband við mig með þessum hætti. Ég er þó sjálfur til rannsóknar í þessu máli og ég veit til þess að gögn hafa verið sótt í einkafyrirtæki með leynd,“ segir Kristinn í samtali við Fréttablaðið.

Assange hef­ur búið í sendi­ráði Ekvador í London frá árinu 2012 af ótta við að vera fram­seld­ur til Banda­ríkj­anna eftir að hafa verið sakaður um kynferðisofbeldi í Svíþjóð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert