Katrín og Guðmundur Ingi funda um loftslagsmál í Helsinki

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heldur til Helsinki í Finnlandi í dag …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heldur til Helsinki í Finnlandi í dag á fund norrænna forsætisráðherra. mbl.is/​Hari

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, halda af stað til Helsinki í Finnlandi í dag á fund norrænna forsætisráðherra (N5) og norrænna umhverfisráðherra um loftslagsmál sem fer fram í Helsinki á morgun.

Markmið fundarins er að fylgja eftir loftslagsfundinum (COP24) sem fram fór í Katowice í Póllandi í byrjun desember og ræða með hvaða hætti Norðurlöndin geti tekið höndum saman á sviði loftslagsmála.

Í frétt á vef Stjórnarráðsins kemur fram að forsætisráðherra mun einnig eiga tvíhliða fund með Juha Sipilä, forsætisráðherra Finnlands, í fyrramálið og heimsækja Aalto-háskóla í Helsinki þar sem fjallað verður sérstaklega um nýsköpun. Einnig mun forsætisráðherra kynna sér starfsemi Hybrid Centre of Excellence, evrópsks öndvegisseturs gegn fjölþátta ógnum, sem finnsk stjórnvöld höfðu frumkvæði um að setja á laggirnar árið 2016.

Umhverfis- og auðlindaráðherra situr fund norrænna umhverfisráðherra á morgun þar sem rætt verður um norrænt samstarf á sviði loftslagsmála. Hann mun auk þess eiga tvíhliða fund með Kimmo Tiilikainen, umhverfisráðherra Finnlands.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra mun sitja fund norrænna umhverfisráðherra um …
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra mun sitja fund norrænna umhverfisráðherra um loftslagsmál sem fer fram í Helsinki á morgun. mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert