Þekktir menn á meðal vændiskaupenda

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. AFP

Íslensk vændiskona sem seldi aðgang að líkama sínum þangað til fyrir tveimur árum segir að þekktir og valdamiklir menn séu meðal vændiskaupenda í Reykjavík.

Hún stundaði vændi í Reykjavík í rúm fimm ár, að því er kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Konan er öryrki og einstæð móðir sem leiddist út í vændi árið 2010 vegna mikillar fátæktar. Hún varð fyrir kynferðisofbeldi í æsku.

Hún hitti mennina í gegnum vefsíðu sem auglýsir fylgdarþjónustu meðal annars á Íslandi og á einkamálum.is.

Konan vill kæra mennina en málin fyrnast á tveimur árum. „Öll mín mál sem ég er með sönnun fyrir eru fyrnd,“ sagði hún við Stöð 2.

Hún íhugar nú að láta lögregluna fá þau nöfn sem hún er með og vonast til að það geti hjálpað við rannsókn nýrri mála.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert