Umhverfisvænna Alþingi

Alþingi.
Alþingi. mbl.is/​Hari

Innkaup á sódavatni í einnota plastflöskum á Alþingi hefur dregist saman um 87%. Þingmenn og aðrir starfsmenn nota nú sódavatnsvél og fylla á margnota flöskur sem Alþingi gaf þeim. Þessi aðgerð fækkar einnota plastflöskum um um það bil 2.500 árlega.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.

Alþingi fékk í október í fyrra viðurkenningu verkefnisins Græn skref í ríkisrekstri fyrir innleiðingu á fyrsta Græna skrefinu.

Sódavatnsvélin.
Sódavatnsvélin. Ljósmynd/Aðsend

Í hverjum mánuði bárust um 40 kg af fjölpósti til Alþingis sem jafngildir um hálfu tonni af pappír árlega. Hluti póstsins var innpakkaður í plast.

Forsætisnefnd ákvað að draga úr móttöku á fjölpósti til þingmanna og innleiddi stefnu þess efnis í desember. Nú er einungis tekið á móti átta eintökum af skýrslum (einni fyrir hvern þingflokk) og fjórum eintökum af blöðum, að því er segir í tilkynningunni.

Óskað var eftir því að blöð og skýrslur væru ekki pakkaðar í plast og að þingmenn fengju í staðinn sendan hlekk á skýrslur. Til að auðvelda aðgang að blöðum var sett upp lesstofa þar sem hægt er að skoða skýrslur og blöð sem berast.

Einnig varð lögð áhersla á umhverfisvænni samgöngur. Starfsmenn og þingmenn hafa tekið vel í að hjóla og ganga til vinnu. Fleiri koma á hjólum til vinnu og settar voru upp rafmagnshleðslustöðvar fyrir bíla.

Flokkun úrgangs hefur einnig aukist mikið og árið 2017 var endurvinnsluhlutfall Alþingis 72%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert