258 brautskráðir frá HR

Frá brautskráningarathöfninni í Hörpu. Alls brautskráðust 182 nemendur úr grunnnámi, …
Frá brautskráningarathöfninni í Hörpu. Alls brautskráðust 182 nemendur úr grunnnámi, 72 úr meistaranámi og fjórir úr doktorsnámi. Ljósmynd/Aðsend

258 nemendur voru brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík (HR) við hátíðlega athöfn í Hörpu nú á laugardag.  

Alls brautskráðust 182 nemendur úr grunnnámi, 72 úr meistaranámi og fjórir úr doktorsnámi, en í útskriftarhópunum voru 108 konur og 150 karlar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Frá tækni- og verkfræðideild luku 70 nemendur grunnnámi, 10 meistaranámi og þrír doktorsnámi. 84 nemendur útskrifuðust úr tölvunarfræðideild, þar af 78 úr grunnnámi og sex með meistaragráðu. Viðskiptadeild útskrifaði 25 nemendur úr grunnámi, 45 úr meistaranámi og einn doktor. Lagadeild útskrifaði 20 nemendur, þar af níu úr grunnnámi og 11 með meistaragráðu. 

Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, hvatti útskriftarnema í ávarpi sínu til að nýta menntun sína til að tala máli þekkingar, gagna, staðreynda og leggja þannig sitt af mörkum í baráttu við falsfréttir, upphrópanir og fásinnu. Hann vék einnig að yfirstandandi tæknibyltingu: „Sjálfvirkni, gervigreind og tengingar eru að umbylta störfum okkar, framleiðslu, þjónustu, viðskiptum og samfélaginu öllu. Þessi bylting er vissulega ógn fyrir þá sem ekki eru undir hana búnir en í þessum breytingum eru í raun gríðarleg tækifæri fyrir okkur sem búum á Íslandi. Það sem við þurfum er góð menntun sem mætir þörfum samfélagsins á hverjum tíma og öflug nýsköpun sem getur drifið verðmætasköpun í síbreytilegum heimi,“ sagði Ari meðal annars í ræðu sinni.

Védís Hervör Árnadóttir, samskipta- og miðlunarstjóri Viðskiptaráðs Íslands, veitti verðlaun VÍ fyrir framúrskarandi námsárangur. Þau hlutu að þessu sinni: Bryndís Gyða Michelsen, BA í lögfræði, Magnús Björn Sigurðsson, BSc í tölvunarfræði, Joseph Karlton Gallogly, MSc í markaðsfræði og Heiðar Snær Jónasson, BSc í rekstrarverkfræði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert