Hámarkshraði lækkaður á Hringbraut

Frá gatna­mót­um Hring­braut­ar og Birki­mels. Umferðarhraði hefur verið lækkaður úr …
Frá gatna­mót­um Hring­braut­ar og Birki­mels. Umferðarhraði hefur verið lækkaður úr 50 kílómetra hraða niður í 40 kílómetra hraða. mbl.is/Jakob Fannar Sigurðsson

Borgarstjórn samþykkti á borgarstjórnarfundi í dag með öllum greiddum atkvæðum lækkun hámarkshraða við Hringbraut niður í 40 kílómetra hraða. Umferðarhraði var einnig lækkaður á Hofsvallagötu milli Hringbrautar og Ægisíðu, Nesvegi milli Kaplaskjólsvegar og Granaskjóls/Sörlaskjóls og Ægisíðu niður í 40 kílómetra hraða á klukkustund.

Ekið var á barn á Hringbraut við gatnamótin við Meistaravelli í janúar og gagnrýndu íbúar Vesturbæjar aðgerðaleysi yfirvalda gagnvart þeirri hættu sem fylgi umferðinni á götunni. Bentu íbúar m.a. á að hraðakstur sé of tíður á Hringbraut og að ökumenn fari oft yfir á rauðu ljósi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert