Skoða rekstrarform bílastæðahúsa

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu á að möguleikar á rekstrarútboði bílastæðahúsanna …
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu á að möguleikar á rekstrarútboði bílastæðahúsanna verði kannaðir. Mynd úr safni, frá bílastæðahúsinu við Kalkofnsveg. mbl.is/Árni Sæberg

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag með 20 atkvæðum gegn þremur tillögu Sjálfstæðisflokksins um að fela umhverfis- og skipulagssviði, í samráði við Bílastæðasjóð, að skoða bestu leiðir varðandi rekstur þeirra sjö bílastæðahúsa sem Reykjavíkurborg rekur í miðborginni. 

Í tilkynningu frá borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna segir að meirihlutinn í borgarstjórn og Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið sér saman um breytingu á tillögunni á borgarstjórnarfundi í dag. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu á að möguleikar á rekstrarútboði verði kannaðir. 

„Ég fagna því að tillaga flokksins um bættan rekstur, nýtingu og þjónustu bílastæðahúsa borgarinnar hafi verið samþykkt,“ er haft eftir Valgerði Sigurðardóttur, flutningsmanni tillögunnar, í tilkynningu. Hún segir ávinning þess að útvista rekstri bílastæðahúsa borgarinnar blasa við.

Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

„Einkaaðilar hafa gjarnan meira svigrúm og sveigjanleika til að auka þjónustu við notendur bílastæðahúsanna, t.d. hvað varðar lengd opnunartíma. Því væri það til hagsbóta fyrir alla borgarbúa og borgarsjóð að fela einkaaðilum rekstur húsanna. Jafnframt er fyrirséð að borgin mun hafa af þessu auknar tekjur,“ segir Valgerður á Facebook-síðu sinni.

Tillagan í heild sinni hljóðar svo:

„Borgarstjórn samþykkir að fela umhverfis- og skipulagssviði, í samráði við Bílastæðasjóð, að skoða bestu leiðir varðandi rekstur þeirra sjö bílastæðahúsa sem sjóðurinn rekur í miðborg Reykjavíkur, þar með talið rekstrarútboð, með það fyrir augum að bæta nýtingu, efla þjónustu og auka hagkvæmni. Einnig skal rýna fyrirkomulag rekstrarins út frá markmiðum borgarinnar varðandi stýringu bílastæða, bætta nýtingu borgarrýmis, bílastæðastefnu og stefnu aðalskipulags. Sviðið skili tillögum til skipulags- og samgönguráðs fyrir 1. ágúst 2019.“

Frá fundi í borgarstjórn Reykjavíkur.
Frá fundi í borgarstjórn Reykjavíkur. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert