Mikil fækkun mófugla við vegi

Vegir eru stundum lagðir um búsvæði fugla og raska fuglalífi.
Vegir eru stundum lagðir um búsvæði fugla og raska fuglalífi. mbl.is/Sigurður Ægisson

Umferð um vegi landsins virðist hafa umtalsverð áhrif á fuglalíf og benda nýjar niðurstöður rannsóknar til þess að sumum tegundum mófugla fækki um meira en helming við vegi þar sem umferðin er frá því að vera lítil og upp í um 4.000 bíla á sumardögum.

Þetta má lesa út úr niðurstöðum rannsóknar eða forkönnunar þriggja höfunda á áhrifum umferðar á fuglalíf, sem birt er á vef Vegagerðarinnar og um fjallað í Morgunblaðinu í dag. Kannaður var þéttleiki algengra mófugla við vegi með mismikla umferð og vöktunargögnum safnað við vegi á Suðurlandi 2011-2018.

„Niðurstöður benda til að vegir minnki þéttleika sumra mófugla langt út fyrir veginn. Flestir vaðfuglarnir eru sjaldgæfari nær vegum og sumum þeirra fækkar meira nær umferðarþyngri vegum,“ segir þar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert