Kristín Lena skipuð forstöðumaður

Kristín Lena Þorvaldsdóttir er nýr forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra.
Kristín Lena Þorvaldsdóttir er nýr forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra. Ljósmynd/Aðsend

Kristín Lena Þorvaldsdóttir hefur verið skipuð í embætti forstöðumanns Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Hjá Samskiptamiðstöðinni starfa rúmlega 30 starfsmenn að því að efla þjónustu við táknmálstalandi fólk sem víðast í samfélaginu, en stofnunin sinnir meðal annars túlkaþjónustu á milli íslensks táknmáls og íslensku, rannsóknum á íslensku táknmáli og kennslu íslensks táknmáls og námsefnisgerð.

Kristín er menntaður málfræðingur og lauk  M.A.-prófi í íslenskri málfræði með áherslu á íslenskt táknmál frá Háskóla Íslands árið 2011. Hún hefur starfað hjá Samskiptamiðstöðinni sem sviðsstjóri táknmálssviðs, verkefnastjóri og túlkur, en var áður aðjunkt við Háskóla Íslands og sinnti þar kennslu og rannsóknum í táknmálsfræði og táknmálstúlkun. 

Ánægð með traustið

„Ég þakka það mikla traust sem mér er sýnt að fá að stýra þessari mikilvægu stofnun sem Samskiptamiðstöð er. Hún er málstöð íslenska táknmálsins og málsamfélags döff á Íslandi og mér er sannur heiður að fá að taka við stjórninni á þessum hátíðisdegi, degi íslenska táknmálsins,“ segir Kristín Lena í fréttatilkynningu um ráðninguna.

Þar er jafnframt haft eftir Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra að það sé ánægjulegt að tilkynna um þessa ráðningu í dag, á degi íslenska táknmálsins.

„Samskiptamiðstöðin gegnir lykilhlutverki  fyrir döff-samfélagið hér á Íslandi og starfsfólk hennar hefur lyft grettistaki fyrir íslenskt táknmál og réttindabaráttu táknmálstalandi fólks,“ segir Lilja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert