Vilja fund með þingmönnum

Þingmenn Reykjavíkur norður eru boðaðir á fund með íbúum kjördæmisins …
Þingmenn Reykjavíkur norður eru boðaðir á fund með íbúum kjördæmisins á morgun. mbl.is/Ómar Óskarsson

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur hafa boðið þingmönnum Reykjavíkurkjördæmis norður til málþings í ráðhúsinu annað kvöld kl. 20. Nú eru kjördæmadagar en þá er gert þinghlé svo þingmenn geti heimsótt kjördæmi sín.

„Öllum þingmönnum Reykjavíkur norður var boðið til málþingsins til að ræða við íbúa miðborgarinnar um þau málefni hverfisins sem að þeim snúa það er að segja með tilliti til lagasetningar um skipulagsmál, atvinnumál, velferðarmál og fleira. Á málþinginu munu þingmennirnir gera grein fyrir stefnu sinni í málum miðborgarinnar og svara spurningum íbúanna um hvernig þeir hyggist beita sér til hagsbóta fyrir hverfið.

Íbúasamtökin buðu til málþings með þingmönnum sínum á síðustu kjördæmadögum í október sl. en því var aflýst vegna dræmrar þátttöku þingmannanna en einungis þrír þingmenn af ellefu í Reykjavíkurkjördæmi norður þáðu boð ÍMR. Nú hafa helmingi fleiri boðað komu sína og því verður málþingið haldið. Stjórn ÍMR hvetur íbúa miðbæjarins til að fjölmenna og kynnast þingmönnum sínum,“ að því er segir í tilkynningu frá íbúasamtökunum.

Þingmenn Reykjavík norður: Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, Katrín Jakobsdóttir, VG, Helgi Hrafn Gunnarsson (Sara Elísa Þórðardóttir), Pírötum, Helga Vala Helgadóttir, Samfylkingu, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Sjálf­stæðis­flokki, Steinunn Þóra Árnadóttir, VG, Þorsteinn Víglundsson, Viðreisn, Birgir Ármannsson, Sjálf­stæðis­flokki, Andrés Ingi Jónsson, VG, Ólafur Ísleifsson, utan flokka, Halldóra Mogensen, Pírötum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert