Vann 45 milljónir á nífaldan miða

Heppinn miðaeigandi vann 45 milljónir króna á nífaldan miða í febrúarútdrætti Happdrættis Háskóla Íslands þegar dregið var í kvöld.

„Segja má að miðaeigandinn hafi haft heppnina margfalt með sér í þetta skiptið því hann fékk hæsta vinning í aðalútdrætti á nífaldan miða og fær því 45 milljónir króna í sinn hlut. Hann var þó ekki eini heppni miðaeigandinn því sjö fengu eina milljón króna hver og sextán fengu 500 þúsund krónur hver,“ segir í fréttatilkynningu frá Happdrættinu.

Enn fremur segir að rúmlega 3.300 miðaeigendur hafi skipt með sér 147 milljónum króna eftir útdrátt kvöldsins. Milljónaveltan gekk hins vegar ekki út og verður því þreföld í næsta mánuði eða 30 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert