Vísa Procar úr Samtökum ferðaþjónustunnar

Samtök ferðaþjónustunnar hafa vísað bílaleigunni ProCar úr samtökunum „vegna alvarlegs …
Samtök ferðaþjónustunnar hafa vísað bílaleigunni ProCar úr samtökunum „vegna alvarlegs brots gegn lögum samtakanna, landslögum eða venjum er varða góða viðskiptahætti“. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa vísað bílaleigunni ProCar ehf. úr samtökunum og fara fram á eftirlitsúttekt til að eyða óvissu um sölu notaðra bílaleigubíla.

Tilefnið er umfjöllun fréttaskýringarþáttarins Kveiks á RÚV í gærkvöldi þar sem fjallað var um bílaleiguna ProCar ehf. Í þætt­in­um kom fram að tugþúsund­ir kíló­metra hafi verið tekn­ir af akst­urs­mæl­um í tug­um bíla. Hátta­lagið væri mögu­legt þar sem ekki þurfi að skoða nýja bíla fyrstu fjög­ur árin sem þeir eru á göt­unni.

Í yfirlýsingu frá SAF segir að ljóst sé að um víðtæk brot sé að ræða sem snúa að fjölda bíla um nokkurra ára bil.

Umrædd bílaleiga er aðili að SAF. Í yfirlýsingunni segir að í ljósi alvarleika málsins hafi stjórn SAF ákveðið einróma að vísa fyrirtækinu úr samtökunum á grundvelli 5. gr. laga SAF þar sem segir að Stjórn SAF geti vikið félaga úr samtökunum „vegna alvarlegs brots gegn lögum samtakanna, landslögum eða venjum er varða góða viðskiptahætti“.

„Samtök ferðaþjónustunnar fordæma umrædd brot og árétta að auk þess að blekkja og brjóta alvarlega á rétti einstaklinga og lögaðila sem í góðri trú hafa keypt notaða bíla af viðkomandi bílaleigu, skekkir slík brotastarfsemi samkeppnisstöðu bílaleiga í landinu,“ segir í yfirlýsingu samtakanna.

SAF áréttar á sama tíma að innan raða samtakanna starfar fjöldi bílaleiga sem stunda ábyrgan og heiðarlegan atvinnurekstur en segja ólíðandi að brot eins fyrirtækis varpi óréttmætum skugga á allar bílaleigur í landinu. „Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir fagmennsku og gæði og líða ekki brot sem þessi.“

Vilja eftirlitsúttekt hjá öllum bílaleigum

Enn fremur leggja SAF og fulltrúar bílaleiga innan samtakanna mikla áherslu á að stjórnvöld og eftirlitsaðilar hlutist til um að gerð verði eftirlitsúttekt hjá öllum bílaleigum sem hafa starfsleyfi, með tilviljanakenndu úrtaki innan hverrar bílaleigu. Þar verði kannað hvort samningar um sölu á bílum í eigu bílaleiga séu í samræmi við kílómetratalningu í leigusamningum. Slíkt eftirlit þarf að eiga sér stað eins fljótt og verða má með það að markmiði að eyða allri óvissu sem kann að ríkja um sölu á notuðum bílaleigubílum.

SAF munu hér eftir sem hingað til vinna að því að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja, fagmennsku og gæði í ferðaþjónustu á Íslandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert