Fjórir fluttir með þyrlu á spítala

Frá Suðurlandsvegi austan við Hjörleifshöfða í kvöld þar sem slysið …
Frá Suðurlandsvegi austan við Hjörleifshöfða í kvöld þar sem slysið átti sér stað. mbl.is/Jónas Erlendsson

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti fyrir skömmu á Landspítalanum í Fossvogi með fjóra sem slösuðust í bílslysi á Suðurlandsvegi austan við Hjörleifshöfða fyrr í kvöld. Hálka var á veginum. 

Samkvæmt heimildum mbl.is eru þrír alvarlega slasaðir og einn minna slasaður. Tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt rákust saman og sá þriðji keyrði út af til að koma í veg fyrir að lenda aftan á öðrum bílnum. Hinir slösuðu voru í bílunum sem rákust saman.

Veg­in­um milli Mýr­dalssands við Vík og Eld­hrauns við Kirkjubæjarklaustur var lokað skömmu eftir slysið en hefur verið opnaður að nýju. Vinnu lögreglu og viðbragðsaðila á vettvangi slyssins lauk laust fyrir klukkan 22. 

 Fréttin hefur verið uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert