Innkalla kreisti-fígúrur

Neytendastofa hefur innkallað kreisti-fígúrur sem kallast Squish-Dee-Lish og hafa verið …
Neytendastofa hefur innkallað kreisti-fígúrur sem kallast Squish-Dee-Lish og hafa verið til sölu í verslunum Hagkaupa. Ljósmynd/Neytendastofa

Neytendastofu hefur borist tilkynning um hættulegt leikfang sem hefur verið til sölu í verslunum Hagkaups. Um er að ræða kreisti-fígúrur sem kallast Squish-Dee-Lish og hafa prófanir leitt í ljós að smáhlutir sem festir eru við leikfangið geta auðveldlega losnað af og valdið köfnunarhættu.

Smáhlutirnir eru til að mynda augu, eyru og hattar sem límdir eru við fígúruna. Hagkaup hefur verið að selja vöruna en hefur strax tekið hana úr sölu. Alls hafa  selst um 400 eintök af vörunni.

Neytendur eru hvattir til að skila Squish-Dee-Lish-fígúrunum til Hagkaups eða farga þeim. Neytendastofa brýnir fyrir foreldrum að vera á varðbergi gagnvart þessari vöru og öðrum vörum sem gætu falið í sér köfnunarhættu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert