Stór fyrirtæki í ferðaþjónustu skotmarkið

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, ræðir við stjórnarmenn í félaginu …
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, ræðir við stjórnarmenn í félaginu fyrr í dag. mbl.is/Árni Sæberg

„Það eina sem ég get upplýst um er að þetta beinist að stórum fyrirtækjum í ferðaþjónustunni,“ segir Ragnar Ingólfsson, formaður VR, í samtali við mbl.is spurður um aðgerðaáætlun félagsins komi til átaka á vinnumarkaði. Áætlunin var tekin fyrir á fundi stjórnar VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, í hádeginu og segir Ragnar engan ágreining um málið.

„Það var enginn ágreiningur í stjórninni um stöðuna sem upp er komin,“ segir Ragnar spurður um niðurstöðu fundarins en á honum var verkfallssjóður VR virkjaður að hans sögn og sérstök verkfallsnefnd hefur verið skipuð sem mun sjá um skipulagningu og framkvæmd verkfalla. Drög að aðgerðaáætlun VR voru enn fremur samþykkt á fundinum. 

„Þar er tilgreint hvaða fyrirtæki verður byrjað á og tillaga að dagsetningum og fjölda daga sem verður síðan útfært nánar um helgina með okkar bandamönnum. Síðan verður það formlega lagt til samþykktar fyrir stjórn á mánudaginn og eftir það getum við farið í atkvæðagreiðslur á þeim vinnustöðum sem um ræðir og í framhaldinu af því þessum aðgerðapakka hrint af stað.“

„Þetta eru ekkert annað en beinar árásir

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir félagið líta það grafalvarlegum augum að verkalýðshreyfingin ætli að stilla ferðaþjónustufyrirtækjum upp sem skotmörkum í slíkum aðgerðum. „Þetta eru ekkert annað en beinar árásir á grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar og getur valdið öllu samfélaginu miklu tjóni.“

Jóhannes segir að árásir á ferðaþjónustuna valdi ekki aðeins fyrirtækjum sem starfa á því sviði skaða heldur einnig fyrirtækjum í öðrum greinum og starfsmönnum þeirra vegna þess að virðiskeðja ferðaþjónustunnar sé svo víðtæk. 

„Áföll í ferðaþjónustunni hafa svo mikil áhrif út frá sér, vegna þess hversu stór hún er og vegna þess hvað hún snertir víða fleti í samfélaginu. Það er fullt af fyrirtækjum í landinu þar sem fólk er ekki í beinni snertingu við ferðamenn alla daga en byggja engu að síður tilveru sína á ferðaþjónustunni.“

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert