Tveimur göngumönnum bjargað

TF-SYN á flugi. Mynd úr safni.
TF-SYN á flugi. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á fimmta tímanum í dag neyðarkall frá tveimur erlendum göngumönnum á Tungnafellsjökli. TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar, og björgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru þegar í stað kallaðar út.

Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni höfðu mennirnir meðferðis neyðarsendi sem þeir virkjuðu en þeir voru orðnir kaldir og hraktir.

Þyrla Landhelgisgæslunnar tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan 17 og rúmri klukkustund síðar voru mennirnir komnir um borð í þyrluna. TF-SYN er nú á leið með göngumennina til Reykjavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert