Efnt til bænastundar á Selfossi

Efnt verður til bænastundar í Selfosskirkju.
Efnt verður til bænastundar í Selfosskirkju. Samsett mynd/mbl.is

Efnt verður til bæna­stund­ar í Selfosskirkju á morgun klukkan 18.00 vegna Páls Mars Guðjónssonar sem leitað hefur verið að í og við Ölfusá síðan á mánudagskvöld.

Leit að Páli hefur ekki borið árangur en henni var hætt á sjöunda tímanum í kvöld.

Tug­ir björg­un­ar­sveit­ar­manna úr Árnes­sýslu og frá höfuðborg­ar­svæðinu leituðu í dag en talið er að Páll hafi ekið bif­reið sinni út í Ölfusá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert